alltervaent
Auður í heilsu – sjö daga vegan matarplan
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Langar þig að borða hollari og fjölbreyttari mat en veist ekki alltaf hvað þú átt að elda?
Í Auður í heilsu – sjö daga vegan matarplan finnurðu 29 girnilegar, einfaldar, hollar og góðar uppskriftir sem gera það auðveldara og skemmtilegra að borða vel alla vikuna.
Hér eru litríkir morgunverðir, saðsamar máltíðir, gómsæt salöt, súpur, sósur og fleira sem kitlar bragðlaukana – allt úr hráefni sem gefur líkamanum góða næringu og vellíðan. Uppskriftirnar henta öllum sem vilja bæta fleiri hollum og ljúffengum réttum inn í sitt daglega líf á einfaldan hátt.
Bókin inniheldur sjö daga matarplan, skýrar leiðbeiningar og innkaupalista. Hún sparar þér tíma og peninga og auðveldar þér að auka hollustuna í mataræðinu á einfaldan og ljúffengan hátt. Þú færð hugmyndirnar, uppskriftirnar og skipulagið á einum stað – og getur einfaldlega byrjað að elda.
Bókin er fallega myndskreytt og í handhægu A5-broti. Gormabindingin gerir henni kleift að liggja opin á eldhúsborðinu á meðan eldað er.
Í bókinni færðu:
• 29 girnilegar og einfaldar uppskriftir að hollum og góðum mat
• Sjö daga tilbúið matarplan ásamt bónus uppskriftum
• Innkaupalista fyrir vikuna
• Morgunverði, aðalrétti, súpur, salöt, sósur og fleira
• Fallegar myndir sem vekja matarlystina
• Handhæga gormabók sem liggur opin meðan eldað er
Auður Ingibjörg Konráðsdóttir er menntaður matreiðslumaður og bakari og hefur verið Heilsukokkur í yfir 30 ár. Þetta er fjórða íslenska matreiðslubók hennar.

